04maí
† Ljóđ til Lilju †
†
Elsku Liljan okkar
nú farin ertu frá
á föstudagin síðasta
fékk ég þig að sjá
þeim degi gleymi ég aldrei,
hann varðveiti ég vel
svo falleg varstu elskan mín
og allra vinarþel.
Á söngkeppninni fékk ég
sms frá þér
með hamingjuóskum, hrósi og broskall
í símanum mínum það er
því ætla ég aldrei að eyða,
svo vænt um það þykir mér
svo góð varstu alltaf með bros útá kinn,
ég vild´að þú værir hér.
Nú gamlar minningar koma,
uppí hugann á mér
til Kötu ég fór á þriðjudaginn,
við skoðuðum video af þér
svo geislandi varstu sem Cha Cha
í Grease árið 2003
já hæfileikana hafðirðu marga
og alltaf svo trygg og trú.
Á himninum situr engill,
hún horfir okkur á
hún lýsir okkur leiðina
hvert sem liggja má
því góðvild hennar geislar,
það alltaf af henni ber
ég er svo þakklát fyrir að hafa,
fengið að kynnast þér.
(Höf:Rósa Björg)
†
Elsku Lilja, takk fyrir allt, þú ert yndi og munt alltaf verða. Megi stjarna þín skína skærast elsku engill.